Staðlað upplýsingaskjal um vátryggingu
Í þessu skjali finnur þú allar helstu upplýsingar um trygginguna. Vakin er athygli á því að atriði sem talin eru upp hér fyrir neðan eru ekki tæmandi listar heldur algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar. Nýjustu skilmála og frekari upplýsingar um trygginguna finnur þú á tm.is og í TM appinu. Ef þú kaupir trygginguna færðu skírteini og þá skilmála sem gilda í þínu tilviki og getur þar séð nákvæmlega hvernig tryggingavernd þinni er háttað. Þú getur alltaf nálgast yfirlit yfir þínar tryggingar og iðgjöld í TM appinu.
Hvernig trygging er húseigendatrygging?
Húseigendatrygging bætir skemmdir sem verða á húseign þinni vegna til dæmis vatns, óveðurs og innbrota. Hún tryggir jafnframt húseiganda fyrir skaðabótaskyldu sem fallið getur á hann þegar bótaábyrgð skapast.
Hvað bætir tryggingin?
- Vatnstjón.
- Innbrot.
- Brot á rúðugleri.
- Fok- og óveðurstjón.
- Frostsprungur á innanhússvatnsleiðslukerfi.
- Snjóþungi sem sligar þak og veggi húseignar.
- Brottflutningur og húsaleiga þegar nauðsynlegt er að flytja úr húsnæði vegna tjóns.
- Sótfall frá kynditækjum og eldstæðum.
- Brot á hreinlætistækjum.
- Skaðabótaábyrgð eiganda húseignar.
- Málskostnaður vegna ágreinings í einkamáli.
Hvað bætir tryggingin ekki?
- Tjón á innbúi.
- Tjón vegna utanaðkomandi vatns.
- Sá hluti húseignar sem olli tjóni, t.d. sjálf rörin í húsinu.
- Tjón vegna langvarandi raka eða vatnsleka.
- Tjón vegna stíflu í frárennslislögnum utanhúss.
Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?
- Tryggingafjárhæðin takmarkast við brunabótamat húseignar, hlutar eða fylgifé húseignar sem ekki fellur undir brunabótamat er því ekki bætt.
- Tjón sem Náttúruhamfaratryggingu Íslands er skylt að bæta er ekki bætt með þessari tryggingu.
- Ef húseignin er 15 ára eða eldri þarf almennt að framkvæma fasteignaskoðun á henni áður en tryggingin tekur gildi.
Hvar gildir tryggingin?
- Tryggingin gildir fyrir þá húseign sem trygging er tekin fyrir og tilgreind er á skírteini.
Hverjar eru mínar skyldur?
- Veita allar nauðsynlegar upplýsingar við töku tryggingar, við endurnýjun og eftir þörfum á meðan tryggingin er í gildi.
- Gera nauðsynlegar ráðstafanir til að koma í veg fyrir tjón, hafa niðurföll í lagi með því að hreinsa úr þeim, takmarka eldhættu á hlutum, læsa húseign og loka gluggum ef enginn er heima.
- Tilkynna tjón til okkar tafarlaust og eigi síðar en innan árs frá tjónsatviki.
- Tilkynna lögreglu tafarlaust um innbrot og skemmdarverk með ósk um rannsókn.
- Reyna að afstýra tjóni eða takmarka það eins og hægt er.
Hvenær og hvernig greiði ég fyrir trygginguna?
Almennt er hægt að velja um nokkrar leiðir til að greiða fyrir trygginguna, þ.e. í einu lagi við útgáfu og hverja endurnýjun, með greiðsludreifingu í netbanka eða með kreditkorti.
Hvenær tekur tryggingin gildi og hvenær lýkur henni?
Tryggingin gildir almennt í 12 mánuði frá því tímamarki sem getið er í skírteini og endurnýjast sjálfkrafa sé henni ekki sagt upp á því tímabili.
Hvernig segi ég tryggingunni upp?
- Almennt er hægt að segja tryggingunni upp hvenær sem er á tryggingartímabilinu með skriflegri uppsögn ef þú færir þig til annars tryggingafélags eða hefur ekki lengur þörf fyrir hana. Iðgjald er þó greitt fyrir þann hluta tímabilsins sem tryggingin var í gildi.