Staðlað upplýsingaskjal um vátryggingu
Í þessu skjali finnur þú allar helstu upplýsingar um trygginguna. Vakin er athygli á því að atriði sem talin eru upp hér fyrir neðan eru ekki tæmandi listar heldur algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar. Nýjustu skilmála og frekari upplýsingar um trygginguna finnur þú á tm.is og í TM appinu. Ef þú kaupir trygginguna færðu skírteini og þá skilmála sem gilda í þínu tilviki og getur þar séð nákvæmlega hvernig tryggingavernd þinni er háttað. Þú getur alltaf nálgast yfirlit yfir þínar tryggingar og iðgjöld í TM appinu.
Hvernig trygging er líftrygging?
Líftrygging greiðir rétthöfum bætur við fráfall þess sem tryggður er hvort sem það er af völdum sjúkdóma eða slysa. Hinn tryggði ákveður sjálfur hverjir eru rétthafar bóta og eru þeir tilgreindir á skírteini tryggingarinnar. Bæturnar eru greiddar út í formi eingreiðslu og eru skattfrjálsar.
Hvað bætir tryggingin?
- Tryggingin greiðir bætur vegna andláts hvort sem það er af völdum sjúkdóma eða slysa.
- Tryggingin greiðir dánarbætur ef lifandi fætt barn, fósturbarn eða stjúpbarn hins tryggða og að 18 ára aldri andast á meðan tryggingin er í gildi.
Hvað bætir tryggingin ekki?
- Sjálfsvíg innan árs frá töku tryggingarinnar.
Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?
- Rangar upplýsingar í umsókn um trygginguna geta haft áhrif á bótarétt.
Hvar gildir tryggingin?
- Tryggingin gildir hvar sem er í heiminum.
Hverjar eru mínar skyldur?
- Fylla þarf út umsókm um líftryggingu og er mikilvægt að öllum spurningum sé svarað sannleikanum samkvæmt og eftir bestu vitund.
- Veita þarf TM upplýsingar um heilsufar, sjúkrasögu og lífsstíl.
Hvernig greiði ég fyrir trygginguna?
Almennt er hægt að velja um nokkrar leiðir til að greiða fyrir trygginguna, þ.e. í einu lagi við útgáfu og hverja endurnýjun, með greiðsludreifingu í netbanka eða með kreditkorti.
Hvenær tekur tryggingin gildi og hvenær lýkur henni?
Tryggingin gildir almennt í 12 mánuði frá því tímamarki sem getið er í skírteini og endurnýjast sjálfkrafa sé henni ekki sagt upp á því tímabili. Tryggingin gildir þó ekki lengur en til 75 ára aldurs hins tryggða.
Hvernig segi ég tryggingunni upp?
Almennt er hægt að segja tryggingunni upp hvenær sem er á tryggingartímabilinu með skriflegri uppsögn ef þú færir þig til annars tryggingafélags eða hefur ekki lengur þörf fyrir hana. Iðgjald er þó greitt fyrir þann hluta tímabilsins sem tryggingin var í gildi.