Staðlað upplýsingaskjal um vátryggingu

Í þessu skjali finnur þú allar helstu upplýsingar um trygginguna. Vakin er athygli á því að atriði sem talin eru upp hér fyrir neðan eru ekki tæmandi listar heldur algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar. Nýjustu skilmála og frekari upplýsingar um trygginguna finnur þú á tm.is og í TM appinu. Ef þú kaupir trygginguna færðu skírteini og þá skilmála sem gilda í þínu tilviki og getur þar séð nákvæmlega hvernig tryggingavernd þinni er háttað. Þú getur alltaf nálgast yfirlit yfir þínar tryggingar og iðgjöld í TM appinu.

Hvernig trygging er ferðaslysatrygging? 

Tryggingin nær til slysa sem þú verður fyrir á ferðalagi í einkaerindum. Einnig gildir tryggingin í viðskiptaferðum, á ráðstefnum eða á námskeiðum í allt að þrjá mánuði. Ferðaslysatrygging getur bæði verið viðbót við aðrar ferðatryggingar eða hún keypt stök ef aðrar tryggingar eru ekki til staðar.


Hvað bætir tryggingin?

  • Dánarbætur eru greiddar ef slys leiðir til andláts.
  • Bætur eru greiddar vegna varanlegs líkamstjóns.
  • Dagpeningar eru greiddir þegar slys veldur tímabundnum missi starfsorku.
  • Tannbrot.

Hvað bætir tryggingin ekki?

  • Tryggingin bætir ekki slys sem orsakast af matar- eða drykkjareitrun.
  • Slys sem verður í handalögmálum eða við þátttöku í refsiverðum verknaði.
  • Slys vegna eitraðra lofttegunda.
  • Tannbrot þegar þú matast.

Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?

  • Slys sem verða í keppni eða við æfingar til undirbúnings fyrir keppni í hvers konar íþróttum eru ekki bætt.
  • Tannbrot eru ekki bætt að því marki sem slíkt er bætt af opinberum tryggingastofnunum.

Hvar gildir tryggingin?

  • Tryggingin nær til ferðalaga í þeim heimshluta sem tilgreindur er á skírteini.

Hverjar eru mínar skyldur?

  • Veita allar nauðsynlegar upplýsingar við töku tryggingar og endurnýjun sem haft geta þýðingu fyrir mat félagsins á áhættunni.
  • Tilkynna skal tjón til TM tafarlaust og eigi síðar en innan árs frá tjónsatviki.
  • Leita skal til læknis þegar slys ber að höndum og fara í öllu að fyrirmælum læknis.

Hvernig greiði ég fyrir trygginguna?


Almennt er hægt að velja um nokkrar leiðir til að greiða fyrir trygginguna, þ.e. í einu lagi við útgáfu og hverja endurnýjun, með greiðsludreifingu í netbanka eða með kreditkorti.

Hvenær tekur tryggingin gildi og hvenær lýkur henni?

  • Tryggingin gildir almennt í 12 mánuði frá því tímamarki sem getið er í skírteini og endurnýjast sjálfkrafa sé henni ekki sagt upp á því tímabili.
  • Sé tryggingin tekin til skemmri tíma en eins árs endurnýjast hún ekki nema um það sé samið.
  • Tryggingin fellur úr gildi í lok þess árs sem þú nærð 75 ára aldri nema öðruvísi sé ákveðið í skírteini.

Hvernig segi ég tryggingunni upp?

Almennt er hægt að segja tryggingunni upp hvenær sem er á tryggingartímabilinu með skriflegri uppsögn þegar þú ert að færa þig til annars tryggingafélags eða hefur ekki lengur þörf fyrir hana. Iðgjald er þó greitt fyrir þann hluta tímabilsins sem tryggingin var í gildi.