Staðlað upplýsingaskjal um vátryggingu
Í þessu skjali finnur þú allar helstu upplýsingar um trygginguna. Vakin er athygli á því að atriði sem talin eru upp hér fyrir neðan eru ekki tæmandi listar heldur algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar. Nýjustu skilmála og frekari upplýsingar um trygginguna finnur þú á tm.is og í TM appinu. Ef þú kaupir trygginguna færðu skírteini og þá skilmála sem gilda í þínu tilviki og getur þar séð nákvæmlega hvernig tryggingavernd þinni er háttað. Þú getur alltaf nálgast yfirlit yfir þínar tryggingar og iðgjöld í TM appinu.
Hvernig trygging er bílaábyrgð?
Bílaábyrgð TM er trygging sem bætir viðgerðarkostnað á nýjum og notuðum ökutækjum sem rekja má til galla á framleiðslu og við samsetningu bifreiða.
Hvað bætir tryggingin?
- Vél.
- Kúpling.
- Gírkassi.
- Framhjóladrif.
- Afturöxull.
- Fjögurra hjóla drif
- Drifskaft.
- Fjöðrunarbúnaður.
- Bremsukerfi.
- Kælikerfi.
- Stýribúnaður.
- Eldsneytiskerfi.
- Dísilinnspýtingarkerfi.
- Rafeindastýrð kveikja.
- Loftræsting.
- Rafbúnaður.
- Hlífar.
- Olíuleki.
Hvað bætir tryggingin ekki?
- Notkun rangrar tegundar eldsneytis eða rangrar spennu við hleðslu rafgeymis.
- Tjón vegna umferðarslyss, áreksturs, áaksturs eða þjófnaðar.
- Afleitt tjón, gallar í hönnun eða gallar þar sem framleiðandi innkallar íhluti.
- Rafhlöður rafmagnsbifreiða.
Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?
- Ökutæki sem eru að jafnaði notuð til kappaksturs eða íþróttakeppni, til leigu, í skammtímaleigu án ökumanns, sem leigubifreið eða við útkeyrslu á vörum eru undanskilin.
- Ef um notað ökutæki er að ræða þarf ástandsskýrsla frá skoðunarstöð Frumherja eða Aðalskoðunar að fylgja með umsókn.
Hvar gildir tryggingin?
Tryggingin gildir vegna bilunar sem á sér stað á Íslandi.
Hverjar eru mínar skyldur?
- Tilkynna skal TM um tjón tafarlaust.
- Gefa skal TM kost á að skoða og meta tjón áður en viðgerð hefst eða biluðum eða gölluðum hlutum er ráðstafað.
- Viðhalda reglubundnu eftirliti og viðhaldi ökutækis.
Hvenær og hvernig greiði ég fyrir trygginguna?
Almennt er hægt að velja um nokkrar leiðir til að greiða fyrir trygginguna, þ.e. í einu lagi við útgáfu og hverja endurnýjun, með greiðsludreifingu í netbanka eða með kreditkorti.
Hvenær tekur tryggingin gildi og hvenær lýkur henni?
Tryggingin gildir almennt í 12 mánuði frá því tímamarki sem getið er í skírteini og endurnýjast sjálfkrafa sé henni ekki sagt upp á því tímabili.
Hvernig segi ég tryggingunni upp?
- Almennt er hægt að segja tryggingunni upp hvenær sem er á tryggingartímabilinu með skriflegri uppsögn ef þú færir þig til annars tryggingafélags eða hefur ekki lengur þörf fyrir hana. Iðgjald er þó greitt fyrir þann hluta tímabilsins sem tryggingin var í gildi.